Mamma er enn í eldhúsinu
hú hú hú
Uppgefin á þessu og hinu
hú hú hú hú
Teygir sig í kampavínið
kælir það í drasl
Á klaka setur vandamálin
áhyggjur og basl
Spyrðir sig í sparigallann
hú hú hú
Sparslar fésið reyrir mallann
hú hú hú hú
Mamma þyrfti að sofna
því mamma er svo þreytt
En mamma landar engum þorskum
sofi hún út í eitt
Mamma mamma ætlar að djamma
Fá sér nýjan vin
Mamma mamma ætlar að dja-mma
Elsku kerlingin
Svo ljúfsárt getur lífið verið
hú hú hú
Hún losar sig við krakkagerið
hú hú hú hú
Rauðum vörum litar glasið
lakkar tásurnar
Lyftir barmi þarf að toppa
hinar pjásurnar
Af lymsku skal nú lagt á ráðin
hú hú hú
Hvar leinist skársta næturbráðin
hú hú hú hú
Stundum er hún heppin
en oftast fer allt í fokk
Þá fer hún heim með
öskupöddufullum drullusokk
Mamma mamma ætlar að djamma
Til í tuskið er
Mamma mamma ætlar að dja-mma
Ein með sjálfri sér
Fengitíminn lönguliðinn
hú hú hú
Lokametrinn skal þó skriðinn
hú hú hú hú
Þótt óbeislaðar gamlar merar
ættu að brokka heim
Það eru engir prinsar eftir
til að brynna þeim
Mamma mamma ætlar að djamma
Hún á engan mann
Mamma mamma ætlar að djamma
Það eina sem hún kann
Mútta mútta ætlar að tjútta
Elsku kerlingin
Mútta mútta ætlar að tjútta
og finna í þetta sinn
nýja pabba þinn
