Fjöllin hafa vakað
í þúsund ár
Ef þú rýnir inn í bergið
sérðu glitra tár
Orð þín kristal tær
drógu mig nær og nær
Ég reyndi að kalla á ástina
sem úr dvala reis í gær
Þú sagðir mér frá skrýtnu landi
fyrir okkur ein
Þar yxu rósir á hvítum sandi
og von um betri heim
Ég hló þú horfðir á
augu þín svört af þrá
Eg teygði mig í himininn
í tunglið reyndi að ná
Sá er talinn heimskur
sem opnar sína sál
Ef hann kann ekki að ljúga
hvað verðurum hann þá
Undir hælinn verður troðinn
líkt og lauf blöðin smá
Við hræðumst hjarta hans
og augun blá
Fjöllin hafa vakað
í þúsund ár
Ef þú rýnir inn í bergið
sérðu glitra tár
Orð þín kristal tær
drógu mig nær og nær
Ég reyndi að kalla á ástina
sem úr dvala reis í gær
Sá er talinn heimskur
sem opnar sína sál
Ef hann kann ekki að ljúga
hvað verðurum hann þá
Undir hælinn verður troðinn
líkt og lauf blöðin smá
Við hræðumst hjarta hans
og augun blá
