Upp í risinu sérðu lítið ljós
Heit hjörtu fölnuð rós
Matarleifar bogin skeið
Undan oddinum samviskan sveið
Þau trúðu á draumamyrkrið svart
Draumarnir tilbáðu þau
Fingurnir gældu við stálið kalt
Lífsvökvann dælan saug
Draumarnir langir runnu í eitt
Dofin þau fylgdu með
Sprautan varð lífið
með henni gátu breitt
Því sem átti eftir að ske
Uppí risinu lágu og ófu sinn vef
Óttann þræddu upp á þráð
Ekkert gat skeð
því það var ekkert ef
ef vel var að gáð
Hittust á laun léku í friði og ró
Í skugganum sat Talía
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó
Við hlið hans sat Júlía
Trúðu á draumamyrkrið svalt
Draumarnir tilbáðu þau
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
Þegar kaldir vindar
haustsins blása
naprir um göturnar
Sérðu Júlíu standa bjóða sig hása
Í von um líf í æðarnar
Því Rómeó villtist inn á annað svið
Hans hlutverk gekk ekki þar
Of stór skammtur stytti þá bið
Inni á klósetti á óþekktum bar
Hittust á laun léku í friði og ró
Í skugganum sat Talía
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó
Við hlið hans sat Júlía
Trúðu á draumamyrkrið svalt
Draumarnir tilbáðu þau
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
Rómeó Júlía
